Um dómstólinn

Héraðsdómur Vesturlands, Bjarnarbraut 8, Borgarnesi. Sími: 432-5030.

Skrifstofa dómstólsins er opin frá kl. 10.00 til 16.00 alla virka daga.

Dómstjóri er Ásgeir Magnússon.

Þingstaður: Héraðsdómur Vesturlands, Bjarnarbraut 8, Borgarnesi.

Upplýsingar um dómsmálagjöld og reikningsnúmer má finna hér.

Regluleg dómþing í einkamálum eru 1. þriðjudag hvers mánaðar kl. 14.00. 

Héraðsdómur Vesturlands starfar samkvæmt lögum nr. 50/2016.

Umdæmi Héraðsdóms Vesturlands er ein dómþinghá, sbr. 1. gr. reglugerðar nr. 1109/2010.
Eftirtalin sveitarfélög heyra til umdæmis hans:  Akraneskaupstaður, Borgarbyggð, Dalabyggð, Eyja- og Miklaholtshreppur, Grundarfjarðarbær, Helgafellssveit, Hvalfjarðarsveit, Skorradalshreppur, Snæfellsbær og Stykkishólmsbær.

Hlé eru á reglulegum dómþingum í einkamálum mánuðina júlí og ágúst svo og frá 20. desember til 6. janúar, að báðum dögum meðtöldum, ár hvert. Þá falla regluleg dómþing í einkamálum niður á lögboðnum frídögum, sbr. lög nr. 88/1971

Hægt er að ná í starfsmann embættisins utan opnunartíma í síma 860-9099 eða 896-6678.