Viðmiðunarreglur fyrir héraðsdómstólana (Sakamál)



Meðfylgjandi viðmiðunarreglur eru settar á grundvelli 4. tl. 14. gr. dómstólalaga nr. 15/1998 í því skyni að samræmd framkvæmd ríki við ákvörðun málsvarnarlauna og þóknunar verjenda og réttargæslumanna.

 

I.
Ákvörðun málsvarnarlauna verjanda þegar fram fer sókn og vörn

1. Bóka skal nákvæmlega hvenær þinghald hefst og hvenær því lýkur og miða málsvarnarlaun við þann tíma, þó þannig að brot úr klukkustund telst heil klukkustund.
2. Dómari ætli verjanda tíma fyrir yfirlestur málsins og undirbúning málflutnings og hafi við það í huga eðli sakarefnis og umfangs málsins.
3. Samanlagðir tímar samkvæmt liðum 1 og 2 séu margfaldaðir með 17.000 krónum pr. klukkustund.
4. Málsvarnarlaun séu þó aldrei lægri en 80.000 krónur.
5. Leggi verjandi fram tímaskýrslu skal framangreint haft í huga við mat á réttmæti hennar.

 
II.
Ákvörðun þóknunar verjanda þegar ekki fer fram sókn og vörn

1. Þessi ákvörðun sé nefnd þóknun en ekki málsvarnarlaun.
2. Fyrir þessi störf séu greiddar 68.000 til 107.000 krónur, sem dómari ákveður í samræmi við þá vinnu sem hann telur verjanda hafa innt af höndum.
3. Sú viðmiðun sé höfð í huga að mæti verjandi vegna einfaldra játaðra brota, t.d. vegna eins brots, aksturs eftir sviptingu eða ölvunaraksturs, séu lægri fjárhæðir ákvarðaðar en sé um mikinn lestur málskjala að ræða fyrir þinghald séu hærri fjárhæðir ákvarðaðar. Þóknun getur þannig farið fram úr framangreindu hámarki, svo og ef verjandi þarf t.d. að mæta     oftar en einu sinni vegna erfiðleika við að ná til ákærða.

 

III.
Ákvörðun þóknunar verjanda á rannsóknarstigi
Þóknun sé greidd samkvæmt réttmætri, sundurliðaðri og tímasettri skýrslu um starf verjanda. Ef líkur eru á að yfirheyrsla hafi staðið í skemmri tíma en í tímaskýrslu greinir er dómara rétt að óska eftir því að fá lögregluskýrslu í hendur eða leita upplýsinga lögreglu um tímalengd. Ennfremur er dómara rétt að krefjast nánari skýringa á útlögðum kostnaði telji hann þess þörf.


IV.
Ákvörðun þóknunar réttargæslumanns brotaþola á rannsóknarstigi og fyrir dómi
1. Þóknun sé greidd samkvæmt réttmætri, sundurliðaðri og tímasettri skýrslu um starf     réttargæslumanns. Ef líkur eru á að yfirheyrsla hafi staðið í skemmri tíma en í tímaskýrslu greinir er dómara rétt að óska eftir því að fá lögregluskýrslu í hendur eða leita upplýsinga lögreglu um tímalengd. Ennfremur er dómara rétt að krefjast nánari skýringa á útlögðum     kostnaði telji hann þess þörf.
2. Lágmarksþóknun sé 54.000 krónur fyrir að mæta við fyrirtöku hjá lögreglu eða dómara. Standi fyrirtaka lengur en í tvær klukkustundir greiðist hver byrjuð klukkustund fram yfir það með 17.000 krónum.


V.
Þóknun vegna þess tíma sem fer í ferðalög og ferðakostnaður
1. Þegar verjandi eða réttargæslumaður, sbr. liði I - IV, þarf vegna starfa sinna að ferðast lengur en hálfa klukkustund skal tekið tillit til þess við ákvörðun þóknunar og málsvarnarlauna.
2. Ennfremur skal, þegar þóknun er ákveðin á rannsóknarstigi, sbr. kafla III og IV, ákveðinn ferðakostnaður í samræmi við reglur ferðakostnaðarnefndar, nú auglýsing nr. 3/2015 um  akstursgjald ríkisstarfsmanna. Nauðsynlegar flugferðir ber að greiða samkvæmt reikningi. Þá skulu einnig ákvarðaðir dagpeningar sé skilyrðum til greiðslu þeirra fullnægt, nú     auglýsing nr. 2/2016.


VI.
Greiðslur til lögreglumanna sem gefa vitnaskýrslur
1. Samkvæmt bréfi dómsmálaráðuneytisins ber lögreglustjóraembættunum að greiða lögreglumönnum laun fyrir að mæta í dómi til að gefa skýrslu. Dómari ákvarðar því einungis greiðslur til lögreglumanna fyrir útlagðan kostnað, s.s. ferðakostnað.


Gildistaka o.fl.

Tilkynning þessi gildir frá 4. janúar 2017. Jafnframt fellur úr gildi tilkynning dómstólaráðs nr. 1/2015.

 

 


    Þannig samþykkt í dómstólaráði
     4. janúar 2017


     Jón Höskuldsson, formaður
    sign.