Viðmiðunarreglur

þegar ákærða er gefinn kostur á að ljúka máli vegna brots gegn 45. gr. a. umferðarlaga nr. 50/1987, sbr. 5. gr. laga nr. 66/2006, og 4. og 6. mgr. 102. gr. umferðarlaga, sbr. 18. gr. laga nr. 66/2006 með viðurlagaákvörðun


1. gr.
Almennt.
Eftirfarandi viðmiðunarreglur gilda um sektarfjárhæð og lengd ökuréttarsviptingar í málum vegna aksturs undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Miðað skal við að sektarfjárhæð og lengd ökuréttarsviptingar skuli jafnan vera í lágmarki hvers flokks fyrir sig og ekki stigvaxandi eftir magni fíkniefna frekar en hér er miðað við.
2. gr.
Sektarfjárhæð og lengd ökuréttarsviptingar.

Finnist lítið magn ávana- og fíkniefna í blóði ökumanns má gefa ákærða kost á að ljúka málinu með ökuréttarsviptingu að lágmarki í 4 mánuði auk greiðslu sektar að upphæð 70.000 krónur.

Finnist mikið magn ávana- og fíkniefna í blóði ökumanns má gefa ákærða kost á að ljúka málinu með ökuréttarsviptingu að lágmarki í 1 ár auk greiðslu sektar að upphæð 140.000 krónum.

Finnist ávana- og fíkniefni aðeins í þvagi ökumanns má gefa ákærða kost á að ljúka málinu með ökuréttarsviptingu að lágmarki í 3 mánuði auk greiðslu sektar að upphæð 70.000 krónum.

Finnist fleiri en ein tegund ávana- og fíkniefna í blóð ökumanns skal leggja til grundvallar það efni sem hefur hæst mæligildi.

Sömuleiðis er heimilt er að gefa ákærða kost á að ljúka máli með því að sæta ökuréttarsviptingu umfram lágmark hafi hann jafnframt brotið gegn öðrum ákvæðum umferðarlaga með akstri sínum, allt eftir eðli þess brots eða þeirra brota.

Nú hefur ákærði einu sinni áður brotið gegn 45. gr. eða 45. gr. a og má þá gefa honum kost á að ljúka máli með ökuréttarsviptingu að lágmarki 2 ár auk greiðslu sektar að lágmarki 100.000 krónum, sé um lítið magn í blóði að ræða eða efni finnst aðeins í þvagi, en 200.000 krónum sé um mikið magn að ræða.

3. gr.
Mörk á milli lítils og mikils magns ávana- og fíkniefna.

Eftirfarandi gildir um mörk á milli lítils og mikils magns ávana- og fíkniefna sem finnst í blóði ökumanns:

Amfetamín:
Lítið magn:                             Allt að 170 ng/ml í blóði
Mikið magn:                          170 ng/ml í blóði eða meira

Tetrahýdrókannabínól (kannabis):
Lítið magn:                             Allt að 2 ng/ml í blóði
Mikið magn:                           2 ng/ml í blóði eða meira

MDMA:
Lítið magn:                             Allt að 220 ng/ml í blóði
Mikið magn:                           220 ng/ml í blóði eða meira

Kókaín:
Lítið magn:                             Allt að 30 ng/ml í blóði
Mikið magn:                           30 ng/ml í blóði eða meira.

 

4. gr.
Gildistaka

Tilkynning þessi tekur þegar gildi.


 

Þannig samþykkt í dómstólaráði
23. janúar 2015



Símon Sigvaldason,
formaður dómstólaráðs
sign.