Þingreglur héraðsdómstóla




1. gr.
Dómarar mæti stundvíslega til dómþings og gæti þess að það hefjist á boðuðum tíma.


2. gr.
Embættisdómarar beri ávallt skikkjur í þinghöldum í dómsölum. Þess er óskað að málflytjendur geri hið sama við aðalmeðferð mála.


3. gr.
Viðstaddir rísi úr sætum þegar dómarar ganga inn og út úr dómsal.


4. gr.
Sóknaraðili/lögmaður sóknaraðila/ákærandi/réttargæslumaður brotaþola sitji við borð hægra megin í salnum frá dómurum séð en varnaraðili/ákærði/lögmaður varnaraðila/verjandi vinstra megin. Málflytjendur sitji nær dómaraborði, en umbjóðendur þeim við hlið.

5. gr.
Dómþing skal sett og því slitið með afgerandi hætti, t.d. hamarshöggi.


6. gr.
Dómari/dómsformaður geri kunnugt hvaða mál á að taka fyrir.


7. gr.
Ákærandi rísi að jafnaði úr sæti og kynni ákæru og grundvöll hennar í stuttu máli.


8. gr.
Sé unninn eiður eða drengskaparheit, standi allir viðstaddir.


9. gr.
Málflytjendur flytji mál standandi við ræðupúlt. Þegar ákærði eða aðili fær að gera athugasemdir í lok málflutnings geri hann það einnig frá ræðupúlti.


10. gr.

Við þá dómstóla, sem dómvörður starfar, skal hann vera dómurum og öðrum þeim, er að máli koma, til aðstoðar í hvívetna, er lýtur að framgangi þinghaldsins. Hann skal sjá um að þeir, sem gefa eiga skýrslur, fái ekki inngöngu í dómsal nema með leyfi dómsformanns.

 


Þannig samþykkt í Dómstólaráði
21. maí 1999.

 

Sigurður Tómas Magnússon formaður Dómstólaráðs
sign.