Héraðsdómur Suðurlands Dómur 11. nóvember 2020 Mál nr. S - 663/2020 : Lögreglustjórinn á Suðurlandi ( Ólafur Hallgrímsson fulltrúi ) g egn Hákon i Má Jósepss yni ( Snorri Sturluson lögmaður ) Dómur Mál þetta, sem þingfest var og dómtekið fimmtudaginn 5. nóvember sl., er höfðað með ákæru lögreglustjórans á Suðurlandi þann 7. október sl., á hendur Hákoni Má Jósepssyni, [...] I. fyrir umferðarlagabrot með því að hafa, að kvöldi föstudagsins 28. ágúst 2020, ekið bifreiðinni [...] sviptur ökurétti suður Tryggvagötu við Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi. Telst brot ákærða varða við 1. mgr. 58. gr. umferðarlaga nr. 77, 2019, sbr. 1. mgr. 95. gr. nefndr a umferðarlaga. II. fyrir umferðarlagabrot með því að hafa, að kvöldi mánudagsins 21. september 2020, ekið bifreiðinni [...] sviptur ökurétti um Tryggvatorg suður Tryggvagötu við Sundhöll Selfoss á Selfossi. Telst brot ákærða varða við 1. mgr. 58. gr. umfer ðarlaga nr. 77, 2019, sbr. 1. mgr. 95. gr. nefndra umferðarlaga. Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar. Ákærði mætti við þingfestingu málsins ásamt Snorra Sturlusyni lögmanni, sem skipaður var verjandi ákærða að hans ósk. Ákærði viðurkenndi skýlaust að hafa gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru. Með vísan til skýlausrar játningar ákærða og þar sem dómari taldi ekki ástæðu til að draga í efa að játning hans væri sannleikanum samkvæm var farið með málið í samræmi við ákvæði 2 1. mgr. 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, eftir að aðilum hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga. Um málavexti vísast til ákæruskjals. Sannað er að ákærði hefur gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru og þar þykir rétt færð til refsiákvæða. Ákærði hefur með háttsemi sinni unnið sér til refsingar. Samkvæmt framlögðu sakavottorði hefur ákærði tólf sinnum áður sætt refsingu, í öll skiptin vegna umferðarlagabrota. Þann 15. desember 2016 var ákærða gerð sekt meðal annars vegna aksturs undir áhrifum fíkniefna, auk þess sem hann var þá sviptur ökurétti tímabundið. Þann 23. janúar 2017, var ákærða gerð s ekt meðal annars fyrir að hafa þann 22. júlí 2016 ekið undir áhrifum fíkniefna og var hann jafnframt sviptur ökurétti tímabundið. Þann 18. ágúst 2017 lauk ákærði þremur málum með sektargerð hjá lögreglustjóra, þar sem honum var gerð sekt meðal annars fyrir að hafa þann 19. mars og 11. júní það ár ekið undir áhrifum fíkniefna sem og sviptur ökurétti, og fyrir að hafa þann 26. apríl 2017 ekið sviptur ökurétti. Var hann þá jafnframt sviptur ökurétti tímabundið og settur í akstursbann. Þann 4. desember 2017, va r ákærða gerð sekt fyrir að hafa þann 22. júní 2017, meðal annars ekið sviptur ökurétti og undir áhrifum fíkniefna. Var hann þá enn sviptur ökurétti tímabundið. Þann 16. febrúar 2018 var ákærði dæmdur til að sæta fangelsi fyrir að hafa þann 27. ágúst og 8. október 2017 ekið sviptur ökurétti og undir áhrifum fíkniefna, og hann jafnframt sviptur ökurétti ævilangt. Var þar um að ræða hegningarauka við síðastgreinda sektarákvörðun. Þann 14. desember 2018 var ákærði dæmdur til að sæta fangelsi, fyrir að hafa þan n 12. maí sama ár ekið sviptur ökurétti og þann 28. maí sama ár ekið sviptur ökurétti sem og undir áhrifum fíkniefna, var þá áréttuð ævilöng svipting ökuréttar hans. Þann 14. febrúar 2019, var ákærði fundinn sekur um að hafa þann 25. júlí 2017, meðal annar s ekið sviptur ökurétti, þann 12. september 2017, meðal annars ekið sviptur ökurétti, þann 28. janúar 2018, ekið sviptur ökurétti, þann 5. mars 2018, ekið undir áhrifum fíkniefna sem og sviptur ökurétti, þann 13. mars 2018, ekið sviptur ökurétti, þann 7. j úlí 2018, ekið undir áhrifum fíkniefna sem og sviptur ökurétti og þann 30. júlí 2018, meðal annars ekið undir áhrifum fíkniefna sem og sviptur ökurétti. Var ákærða þá dæmdur hegningarauki við fyrri dóm, og enn áréttuð ævilöng svipting ökuréttar hans. Þá va r ákærði þann 16. apríl 2019, fundinn sekur um að hafa þann 4. desember 2018 ekið sviptur ökurétti og var honum dæmdur hegningarauki við síðastgreindan dóm. Þá var ákærði þann 18. september 2019, fundinn sekur um að hafa þann 7. júní 2019 ekið sviptur ökur étti. 3 Loks var ákærði þann 1. október sl., fundinn sekur um umferðarlagabrot, þar með talið akstur sviptur ökurétti. Brot þa u sem ákærði er nú sakfelldur fyrir er u frami n fyrir uppkvaðningu síðastgreinds dóms og verður ákærða því nú dæmdur hegningarauki , m eð vísan til 78. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Ákærði er nú fundinn sekur um akstur sviptur ökurétti í sjötta sinn, að virtum hegningaraukasjónarmiðum. Refsing ákærða er hæfilega ákveðin fangelsi í fjóra mánuði. Með vísan til dómvenju þykja ek ki efni til að skilorðsbinda refsinguna. Með vísan til 235 . gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, ber að dæma ákærða til greiðslu alls sakarkostnaðar, sem er þóknun skipaðs verjanda ákærða og er hæfilega ákveðin 137.640 kr., að teknu tilliti til virðis aukaskatts. Sólveig Ingadóttir, löglærður aðstoðarmaður dómara, kveður upp dóm þennan. D Ó M S O R Ð : Ákærði, Hákon Már Jósepsson, sæti fangelsi í fjóra mánuði. Ákærði greiði allan sakarkostnað, 137.640 kr., sem er þóknun skipaðs verjanda, Snorra Sturl usonar lögmanns, að teknu tilliti til virðisaukaskatts. Sólveig Ingadóttir.