Héraðsdómur Reykjaness Dómur 11. desember 2020 Mál nr. S - 2809/2020 : Lögreglustjórinn á höfuðborgars væðinu ( Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari ) g egn Sasa Drca Dómur Mál þetta sem dómtekið var 8. desember 2020 höfðaði Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu með ákæru 13. október 2020 á hendur Sasa Drca, kt. [...] , [...] , [...] : fyri r umferðarlagabrot með því að hafa , miðvikudaginn 13. maí 2020, ekið bifreiðinni [...] sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana - og fíkniefna (í blóði mældist tetrahýdrókannabínól 42 ng/ml) um Dvergbakka í Reykjavík, við hús nr. 14, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn. Telst brot þetta varða við 1., sbr. 2. mgr. 50. gr. og 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019. Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til að sæta sviptingu ökuréttar skv. 101. gr. laga nr. 77/2019. Kröfur ákærða í málinu eru þær að honum verði gerð sú vægasta refsing sem lög leyfa. Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Ákærði hefur játað sakargiftir og var málið tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu eftir að sækjanda o g verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði máls og ákvörðun viðurlaga. Sannað er með skýlausri játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og eru brot hans rétt heimfærð ti l refsiákvæða í ákæru. Ákærði er fæddur [...] og hefur samkvæmt framlögðu sakavottorði þrívegis áður sætt refsingu . Með dómi Héraðsdóms Norðurlands Vestra 29. janúar 2020 var ákærði dæmdur til að greiða 310.000 króna sekt fyrir akstur undir áhrifum ávana - og fíkniefna en atvik þess máls gerðust áður en ákærði undirgekkst 260.000 króna sekt hjá Lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu þann 19. september 2019 . Við mat á refsingu er litið svo á að ákærð i sé nú í þriðja skipti að aka undir áhrifum ávana - eða fíkn iefna. Refsing ákærða þykir hæfilega ákveðin fangelsi í 30 daga. 2 Samkvæmt úrslitum málsins, sbr. 1. mgr. 235. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, verður ákærða gert að greiða allan sakarkostnað. Ákærði dæmist því til að greiða útlagðan kostnað veg na rannsókna á lífsýnum, samtals 77.717 krónur. Með vísan til framangreinds þykir, í samræmi við kröfugerð ákæruvalds og með vísan til 99. og 101. gr. umferðarlaga nr. 77/2019 , rétt að svipta ákærða ökurétti ævilangt frá birtingu dóms þessa að telja. Ólafur Egill Jónsson aðstoðarmaður dómara kveður upp dóm þennan. Dómso r ð: Ákærði, Sasa Drca, sæti fangelsi í 3 0 daga. Ákærði er sviptur ökurétti ævilangt frá birtingu þessa dóms a ð telja. Ákærði greiði 77.717 krónur í sakarkostnað. Ólafur Egill Jónsson