Héraðsdómur Suðurlands Dómur 24.nóvember 2020 Mál nr. S - 662/2020 : Lögreglustjórinn á Suðurlandi ( Ólafur Hallgrímsson fulltrúi ) g egn Sigurgeir i Hanness yni ( enginn ) Dómur Mál þetta, sem þingfest var og dómtekið fimmtudaginn 19. nóvember sl., er höfðað með ákæru lögreglustjórans á Suðurlandi þann 7. október sl., á hendur Sigurgeiri Hannessyni, [...], fyrir umferðarlagabrot með því að hafa, að kvöldi sunnudagsins 16. ágúst 2020, ekið bifreiðinni [..] norður Þingvallaveg við Lyngdalsheiðarveg í Bláskógabyggð, sviptur ökuréttindum og Telst brot ákærða varða við 1. mgr., sbr. 3. mgr. 49. gr. og 1. mgr. 58. gr. umferðarlaga nr. 77, 2019, sbr. 1. mgr. 95. gr. sömu laga. Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til að sæta sviptingu ökuréttar samkvæmt 99. og 101. gr. umferðarlaga nr. 77, 2019 og til greiðslu alls sak arkostnaðar. Ákærði mætti ekki við þingfestingu málsins þrátt fyrir lögmæta birtingu ákæru þann 4. nóvember sl., ásamt fyrirkalli þar sem þess var getið að málið kynni að verða dæmt að ákærða fjarstöddum. Málið var því tekið til dóms samkvæmt 161. gr. l aga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Um málavexti vísast til ákæruskjals. Sannað er að ákærði hefur gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru og þar þykir rétt færð til refsiákvæða. Ákærði hefur með háttsemi sinni unnið sér til refsingar . Samkvæmt framlögðu sakavottorði hefur ákærði níu sinnum áður sætt refsingu . Þann 30. mars 2012 var ákær ða gerð sekt vegna ölvunaraksturs og hann jafnframt sviptur ökurétti í fjögur ár. Þann 2. ágúst 2019 var ákærða gerð sekt vegna akstur s sviptur ökurétt i. Þann 2. mars 2 2015 var ákærði fundinn sekur um ölvunarakstur sem og akstur sviptur ökurétti. Kemur fram í dóminum að ölvunaraksturs brot ákærða sé þá ítrekað öðru sinni, en samkvæmt dómnum var ákærða þann 3. apríl 2009 gerð sekt vegna ölvunaraksturs og a ksturs undir áhrifum fíkniefna . Var ákærði þá sviptur ökurétti ævilangt. Þá var ákærða þann 12. maí 2015 gerð sekt vegna aksturs sviptur ökurétti. Þann 27. október 2016 var ákærði fundinn sekur um akstur sviptur ökurétti og honum gert að sæta fangelsi. Þan n 2. febrúar 2017 var ákærða dæmdur hegningarauki við síðastgreindan dóm, er hann var fundinn sekur um akstur undir áhrifum fíkniefna, sem og akstur sviptur ökurétti. Var þá ítrekuð ævilöng svipting ökuréttar hans. Þann 5. september 2018 var ákærði fundinn sekur um ölvunarakstur, akstur undir áhrifum fíkniefna sem og akstur sviptur ökurétti . Var þá enn áréttuð ævilöng svipting ökuréttar hans. Þann 30. október 2019 var ákærð a dæmdur hegningarauki við síðastgreindan dóm er hann var meðal annars fundinn sekur um akstur sviptur ökurétti. Loks var ákærð a þann 12. mars sl., dæmdur hegningarauki við síðastgreindan dóm, er hann var meðal annars fundinn sekur um akstur sviptur ökurétti og honum þá gert að sæta fangelsi í þrjá mánuði. Ákærði er nú meðal annars fundinn sekur um ölvunarakstur og er það brot hans, að framansögðu virtu, nú ítrekað í fimmta sinn. Þá telst ákærða nú, að virtum hegningaraukasjónarmiðum, í sjötta sinn gerð refsing vegna aksturs sviptur ökurétti. Refsing ákærð a er hæfilega ákveðin fangelsi í sex mánuði . Með vísan til dómvenju þykja ekki efni til að skilorðsbinda refsinguna. Með vísan til 99. og 101. gr., þó einkum 3. mgr. 99. gr. umferðarlaga nr. 77/2019, ber að árétta ævilanga sviptingu ökuréttar ákærða. Með v ísan til 235. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, ber að dæma ákærða til greiðslu alls sakarkostnaðar, sem nemur samkvæmt yfirliti lögreglu samtals 46.414 kr. Sólveig Ingadóttir, löglærður aðstoðarmaður dómara, kveður upp dóm þennan. D Ó M S O R Ð : Ákærði, Sigurgeir Hannesson, sæti fangelsi í sex mánuði. Ákærði er sviptur ökurétti ævilangt. Ákærði greiði allan sakarkostað, 46.414 krónur. Sólveig Ingadóttir.